Flýtilyklar
4. janúar 2012
49. fundur Menningarnefndar Fjallabyggðar
haldinn í ráðhúsinu á Siglufirði miðvikudaginn 4. janúar 2012
og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Bjarkey Gunnarsdóttir, Ásdís Pálmadóttir, Ægir Bergsson, Guðmundur Gauti Sveinsson, Gunnlaug
Kristjánsdóttir og Karítas Skarphéðinsdóttir Neff.
Fundargerð ritaði: Karítas Skarphéðinsdóttir, fræðslu- og menningarfulltrúi.
Fyrir var tekið:
1. 1110070 - Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012
Menningarnefnd fór yfir tilnefningar bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2012.
Þrjár tilnefningar bárust nefndinni, Guðrún Þórisdóttir myndlistarmaður, hljómsveitin Roðlaust og beinlaust og Kirkjukór
Ólafsfjarðar. Menningarnefnd tilnefnir Guðrúnu Þórisdóttur myndlistarkonu (Garúnu) bæjarlistamann Fjallabyggðar 2012. Útnefning
bæjarlistamanns fer fram föstudaginn 20. janúar kl. 17.00.
2. 1112015 - Fyrirspurn frá Þjóðlist hvort Fjallabyggð vilji vera samstarfsaðili í ráðstefnu um UNESCO samþykktina varðandi
óáþreyfanlegar menningarminjar
Þórdís Pétursdóttir fyrir hönd Þjóðlistar ehf. vill kanna hvort
Fjallabyggð vilji vera samstarfsaðili í ráðstefnu um UNESCO samþykktina varðandi óáþreifanlegar menningarminjar. Áætlað er
að ráðstefnan verði í nóvember 2012 í Fjallabyggð og á Akureyri. Menningarnefnd hefur ekki nægar forsendur til að gerast
samstarfsaðili að verkefninu og óskar eftir nánari gögnum frá Þjóðlist.
3. 1110105 - Styrkumsóknir 2012 - Menningarmál
Fræðslu- og menningarfulltrúi mun senda umsækjendum menningarstyrkja svarbréf
á næstu dögum. Styrkirnir verða greiddir út í byrjun febrúar.
4. 1201005 - Ný gjaldskrá Bókasafns Fjallabyggðar
Forstöðumaður Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar hefur
lagt drög að nýrri gjaldskrá fyrir menningarnefnd.
Menningarnefnd samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.




