Íbúafjöldi Ólafsfjarðar hefur
sennilega verið tiltölulega stöðugur framan af öldum og það er ekki fyrr en upp úr
1900 sem það fer að breytast með tilkomu þorpsmyndunar í "Horninu"
Ólafsfirðingum fer þá nokkuð ört fjölgandi alveg fram á áttunda áratug
aldarinnar. Flestir verða íbúarnir árið 1992 samtals 1205 , og hefur fólksfjöldinn
staðið nokkuð í stað síðustu tvo áratugina.en síðustu tvö árin hefur þeim
fækkað örlítið.
Meðfylgjandi súlurit sýnir þróunina
frá árinu 1703-1998.
Næsta rit sýnir kynjaskiptingu
íbúa Ólafsfjarðar og aldursskiptingu á 10 ára bili 1.des 1997. Karlar eru ívið fleiri eða 581, en konur
518. Konur eru hins vegar örlítið lífseigari eins og sést á súluritinu.