Reitir á Siglufirði 20.-31. júlí
-----
Reitir er alþjóðlegt samvinnuverkefni sem fer fram á Siglufirði 20. – 31. júlí 2012 á vegum Alþýðuhússins þar í bæ í
samstarfi við ýmsa hópa og einstaklinga, íslenska og erlenda. Þátttakendur vinna með bæjaryfirvöldum og íbúum á
Siglufirði að tímabundnum skapandi útfærslum á sameiginlegum svæðum innan bæjarins – en samfélagsaðstæður á
Siglufirði er grundvöllur sem verkefnið byggir á. Markmið Reitaer að móta varanlegann grundvöll fyrir skapandi fólk
til að nota þekkingu sína og reynslu í beinu samstarfi við bæjarbúa. Mikil áhersla er lögð á fjölbreyttni starfsgreina
innan hópsins og skapandi hugsun sem hráefni í tilraunakennda hugmynd að almenningsrými.
Fjöldi erlendra þátttakenda verður á bilinu 20 til 25 en reiknað er með 11 íslenskum þátttakendum. Hópurinn
samanstendur annars vegar af atvinnumönnum í listum og faglærðum hönnuðum og hins vegar sérfræðingum í
félagsvísindum og raungreinum. Með fagurfræði, aðferðafræði, og sérstaka eiginleika staðarins í huga mun hópurinn
kynnast bænum í heimsóknum og smiðjum á vinnustöðum bæjarins fyrstu dagana en sú reynsla mun gagnast sem
innblástur og mikilvæg tenging við menningarlíf og sérstöðu Siglufjarðar. Föstudaginn 27. júlí verður formleg opnun á
verkum þátttakenda og kynning á Reitum en Alþýðuhúsið í bænum mun hýsa þátttakendur og þjóna sem vinnustofa og
verkstæði.
Þátttakendur koma víða að, allt frá Kína til nágranna okkar í Skandinavíu og reynsla þeirra og þekking er jafn
fjölbreytt. Þar má finna grafíska hönnuði, landslagsarkitekta, listamenn, tónlistarmenn, tölvugúrúa, þjóðfélagsfræðinga,
þýðendur og heimspekinga svo e-ð sé nefnt. Allir hafa það sameiginlegt að vera skapandi og karftmiklir einstaklingar
sem staðsetja iðju sína í félagslegu samhengi útfrá mismunandi hugmyndum um rými.




