Á næstunni

Kvæðamannamót á Siglufirði Kvæðamannamót á Siglufirði 3. mars 2012   ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti

Á næstunni

Kvæðamannamót á Siglufirði 3. mars 2012
 
ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri og með stuðningi Menningarráðs Eyþings og Þjóðlagseturs. 
 
Á mótinu verður þriggja klst. námskeið sem Bára Grímsdóttir kvæðakona sér um. Hún mun kenna okkur hefbundin kvæðalög og flutningsmáta þeirra, ásamt ýmsu öðru sem við kemur kvæðamennskunni.

Bára og maður henna Chris Foster, sem er virtur enskur þjóðlagasöngvari, eru með þjóðlagadúettinn Funa og koma beint frá því að taka þátt í þjóðtónlistarhátíð í Sviss.  Þau munu halda stutta tónleika laugardaginn 3. mars kl. 16:30 á Kaffi Rauðku, þar sem við fáum að heyra nokkuð af því efni sem þau fluttu í Sviss.

Hápunktur mótsins verður síðan kvöldvaka með glæsilegum kvöldverði á Kaffi Rauðku, þar sem kvæðamenn stíga á stokk og einnig verður kveðið saman.

11:00  -  Gestir boðnir velkomnir
11:30  -  Námskeið
13:00  -  Hádegisverður
14:00  -  Námskeið
15:30  -  Miðdegiskaffi
16:30  -  Tónleikar með Funa
17:15  -  Hvíld fyrir kvöldvöku
18:30  -  Kvöldverður og kvöldvaka

Pakkaverð (Námskeið, tónleikar, hádegisverður, miðdegiskaffi og kvöldverður): 7.700,-

Verð á staka viðburði:
Námskeið: 2.500,-
Tónleikar: 1.500,-
Hádegisverður: 1.490,-
Kvöldverður með kvöldvöku: 4.290,-

Gisting:  5.000,-/mann ein nótt með morgunverði á Gistiheimilinu Hvanneyri

Nauðsynlegt er að skrá sig eigi síðar en 27. febrúar með því að senda netpóst á Rúnu hjá Kvæðamannafélaginu Rímu í Fjallabyggð (runaingi@simnet.is - 869-3398)


Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 27. febrúar!




headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya