Skóla- og frístundaakstur

Skóla- og frístundaakstur í Fjallabyggð

Frá og með 25 ágúst tekur við vetraráætlun skóla- og frístundaaksturs í Fjallabyggð.  Almennir farþegar eru velkomnir í skólarútu ef sæti eru laus en nemendur grunnskóla, menntaskóla og starfsfólk sveitarfélagsins ganga fyrir sætum, í þessari röð.

 

Reiknað er með að nemendur fari heim með skólarútu. Ef annar háttur er hafður á eru
nemendur á ábyrgð forráðamanna. Ætlast er til að forráðamenn yngri nemenda láti ritara vita fari þeir ekki með skólarútu.

Bílstjóri skólarútu er Baldur Jörgen Daníelsson.

Fyrirtækið Suðurleiðir er þjónustuaðili. Aksturstafla er unnin í samvinnu við Menntaskólann á Tröllaskaga og félagsmiðstöðina Neon.

Almennir farþegar eru velkomnir í skólarútu ef sæti eru laus en nemendur grunnskóla, menntaskóla og starfsfólk sveitarfélagsins ganga fyrir sætum, í þessari röð.

   

 

 

Almenningssamgöngur í Fjallabyggð

STRÆTÓ ehf ekur milli Fjallabyggðar og Akureyrar. Strætó annast strætisvagnaþjónustu á landsbyggðinni og er með fastar ferðir milli Fjallabyggðar og Akureyrar. Strætóferðir á virkum dögum frá Siglufirði eru kl. 06:40, 09:30 og 15:00 og stoppar vagninn við Múlaveg í Ólafsfirði kl. 06:56, 09:46 og 15:16. Um helgar er eingöngu ekið á sunnudögum og er þá farið frá Siglufirði kl. 10:30.  Bíllinn er þá í Ólafsfirði kl. 10:46. Sama tímasetning er á helgidögum. Aksturstími til Akureyrar er um 1 klst. og 10 mín. Á virkum dögum fer Strætó frá Menningarhúsinu Hofi kl. 08:15, 13:15 og 16:30.  Á sunnu- og helgidögum kl. 15:40.

Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Strætó.

Fréttir

Vegna veðurspár er mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum

Umskipti verða í veðri næsta rúma sólarhringinn með hlýjindum og úrkomu. Veðurstofa Íslands hefur gefið úr gula veðurviðvörun þar sem segir að hvasst verði í veðri með 15-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast vestantil á svæðinu. Varasamt ferðaveður.
Lesa meira

Áfram óvissustig vegna snjóflóðahættu

Nokkuð stórt snjóflóð féll á varnargarðinn Stóra-Bola ofan við innsta hluta þéttbýlisins á Siglufirði um hádegisbil í dag. Það rann meðfram honum niður að garðsenda en stöðvaðist þó talsvert ofan þjóðvegar. Stórt snjóflóð hefur einnig fallið úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði. Það kom úr næsta gili norðan við hestahúsahverfið, sem er norðan við gangamunna Héðinsfjarðarganga. Í veðrinu hefur fólk verið beðið um að takmarka umferð um hesthúsin vegna mögulegrar snjóflóðahættu.
Lesa meira

Vegagerðin prófar varaaflsbúnað í Héðinsfjarðargöngum

Miðvikudaginn 4. mars, kl. 09 mun Vegagerðin prófa nýuppsettan varaaflsbúnað í Héðinsfjarðargöngum. Búnaðinum er ætlað að tryggja raforku á neyðarbúnaði í göngunum í allt að þrjár klukkustundir ef rafmagnslaust verði á svæðinu.
Lesa meira

Viðhaldsvinna í Múlagöngum !!

Vegna viðhaldsvinnu verða Múlagöng lokuð frá miðnætti annað kvöld, fimmtudaginn 13. mars, og fram eftir nóttu.
Lesa meira

Skólaakstur í jólaleyfi Grunnskóla Fjallabyggðar

Akstur skólabíls breytist nú þegar jólafrí grunnskólans hefst 20. desember. Akssturstafla gildir til og með 2. janúar 2025.  Eknar verða þrjár ferðir á dag, virka daga í jólafríinu.
Lesa meira