Um heilsueflandi samfélag

Fjallabyggð er eitt af þeim sveitarfélögum sem undirritað hefur samstarfssamning við Embætti landlæknis um verkefnið Heilsueflandi samfélag. 

Samningurinn um heilsueflandi samfélag

Heilsueflandi samfélag er samfélag þar sem tekið er mið af heilsu og vellíðan allra íbúa í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Í Heilsueflandi samfélagi er unnið markvisst lýðheilsustarf með lýðheilsuvísa, gátlista og önnur viðeigandi gögn til að meta stöðuna með tilliti til þarfa íbúa á öllum æviskeiðum og forgangsraða í samræmi við þá greiningu.

Meginmarkmið samstarfsins er að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífsháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa í Fjallabyggð.

Leiðarljós Heilsueflandi samfélags:

  • Virk þátttaka samfélagsins í heild með aðkomu lykilhagsmunaaðila.
  • Starfið byggir á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.
  • Valda ekki skaða (do no harm) með því að huga ávallt að áhrifum starfsins á andlega, líkamlega og félagslega heilsu og vellíðan allra íbúa.
  • Jöfnuður til heilsu með almennum aðgerðum og aðgerðum sem taka tillit til viðkvæmra hópa.
  • Sjálfbærni, skipuleggja starfið og leggja grunninn að árangri til lengri tíma litið.

Fjallabyggð:

  • Ber ábyrgð á starfinu og vinnur í samræmi við meginmarkmið og leiðarljós HSAM samanber 1. grein.
  • Tilnefnir tengilið við EL og stuðlar að virku starfi og reglulegri aðkomu lykilhagsmunaaðila með því að hafa starfandi stýrihóp, og eftir þörfum aðra samráðshópa, sem hittast reglulega og horfa heildstætt á málin m.t.t. ólíkra þarfa allra íbúa.
  • Setur fram stefnu, markmið og aðgerðaáætlun og metur árangur og framvindu starfsins.
  • Notar vinnusvæðið heilsueflandi.is og leggur þannig til gögn í árlega skýrslu um stöðu og framvindu starfsins. 

Embætti landlæknis:

  • Styður við starfið m.a. með ráðgjöf, auðkennisefni, gátlistum fyrir helstu áhersluþætti HSAM og útgáfu lýðheilsuvísa.
  • Leggur til vinnusvæðið heilsueflandi.is sem m.a. útbýr árlegar skýrslur um stöðu og framvindu starfsins.

Allar frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu Landlæknisembættisins.

Í stýrihópi um heilsueflandi samfélag Fjallabyggðar sitja:

Heilsugæslan: Guðrún Helga Kjartansdóttir
Eldri borgarar: Ingvar Ágúst Guðmundsson
UÍF: Arnheiður Jónsdóttir
GF og LF: María Bjarney Leifsdóttir

Fjallabyggð: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri FFM

 

Hvað er heilsueflandi samfélag?

Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Markmið Heilsuveru er að auka aðgengi almennings að eigin heilbrigðisupplýsingum, auka þjónustu almennings í heilbrigðiskerfinu og jafnframt að koma á framfæri áreiðanlegri þekkingu um þroska, heilsu og áhrifaþætti heilbrigðis.

Heilsuvera

 

 

 

 

Fréttir

Skíðagöngunámskeið á Siglufirði 29. - 31. janúar 2024

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag, Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, standa sameiginlega fyrir námskeiðum í skíðagöngu fyrir íbúa Fjallabyggðar í janúar 2024. Skíðagöngunámskeið verður á Siglufirði mánudaginn 29. janúar nk. Kennt verður þrjá daga, 29. 30. og 31. janúar. Mæting er við Hól kl. 18:00 alla dagana.
Lesa meira

Skíðagöngunámskeið í Ólafsfirði 8.-10. janúar 2024

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag, Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, ætla að standa sameiginlega fyrir námskeiðum í skíðagöngu fyrir íbúa Fjallabyggðar í janúar 2024. Fyrirhugað er að námskeiðin verði tvö, í sitt hvorum bæjarhluta Fjallabyggðar en íbúum er frjálst að velja það námskeið sem hentar.
Lesa meira

Námskeið í skíðagöngu fyrir íbúa Fjallabyggðar

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag, Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, ætla að standa sameiginlega fyrir námskeiðum í skíðagöngu fyrir íbúa Fjallabyggðar í janúar 2024.
Lesa meira

Opnir hreyfitímar Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Ólafsfirði fyrir íbúa Fjallabyggðar

Heilsueflandi Fjallabyggð býður fullorðnum íbúum í opna hreyfitíma í Íþróttahúsi Fjallabyggðar í Ólafsfirði í október. Í boði verður fjölbreytt hreyfing og góður félagsskapur. Mánudaginn 16. október kl. 17:30 - K-dagur í dag; Körfubolti, kóngurinn á kistunni, kviðæfingar og kannski eitthvað rólegra á kantinum, s.s. badminton. Aðgangur ókeypis !
Lesa meira

20 ára og eldri velkomnir í opna hreyfitíma í þessari viku í íþróttahúsum Fjallabyggðar

Ákveðið að bjóða íbúum 20 ára og eldri í síðustu opnu hreyfitímana fyrir páska. Þriðjudaginn 28. mars kl. 17:30 - 18:30 á Siglufirði og miðvikudaginn 29. mars kl. 17:00 - 18:00 í Ólafsfirði. Stýrihópur um heilsueflandi samfélag ákvað að framlengja verkefnið með fjórum tímum í viðbót í Ólafsfirði eftir páska, þar sem mikil þátttaka hefur verið í opnum tímum þar. Allir íbúar Fjallabyggðar 20 ára og eldri eru velkomnir í tímana sem verða miðvikudagana 12. apríl, 19. apríl, 26. apríl og 3. maí. Í boði verður fjölbreytt hreyfing og góður félagsskapur.
Lesa meira