Til baka | Prenta |
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 12. fundur - 20. maí 2020 |
Haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði,
20.05.2020 og hófst hann kl. 15:00 | | Fundinn sátu: Guðrún Helga Kjartansdóttir fulltrúi heilsugæslu,
Björn Þór Ólafsson fulltrúi eldri borgara,
Þórarinn Hannesson fulltrúi UÍF,
María Bjarney Leifsdóttir fulltrúi leik- og grunnskóla,
Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála,
| | Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála | | | |
| | Dagskrá: | | | | 1. 2005055 - Hreyfivika UMFÍ 2020 | Hreyfivika UMFÍ 2020 verður haldin 25. - 31. maí. Stýrihópur um heilsueflandi samfélag tekur undir hvatningarorð UMFÍ og hvetur fyrirtæki, íbúa, skóla og íþróttafélög til að taka þátt í hreyfingunni. Upplýsingar verða aðgengilegar á heimasíðu Fjallabyggðar auk þess sem hengdar verða upp auglýsingar á fjölförnum stöðum. | | | | |
| 2. 1911044 - Lýðheilsusjóður 2020 | Fjallabyggð fékk úthlutað kr. 300.000 úr Lýðheilsusjóði. Stýrihópur fagnar úthlutuninni. | | | | |
| 3. 1804004 - Heilsueflandi samfélag - staðan og næstu skref | Vegna aðstæðna í mars sl. náðist ekki að klára dansnámskeið sem Stýrihópur um heilsueflandi samfélag stóð fyrir í Tjarnarborg. Stefnt er að því að klára námskeiðið næsta haust ef aðstæður leyfa. Þá er einnig stefnt að því að bjóða upp á leiðsögn í líkamsræktum sveitarfélagsins. Hreyfivika UMFÍ fer fram dagana 25.-31. maí, sjá dagskrárlið 1. Stýrihópurinn vill hvetja íbúa Fjallabyggðar til heilbrigðis og hreyfingar í sumar og um leið hvetja sveitarfélagið til að huga að göngustígum og fjölförnum gönguleiðum og setja bekki við gönguleiðir. | | | | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:45 |
|
|
Til baka | Prenta |