UÍF óskar eftir sjálfboðaliðum

Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst.... og því biðlar stjórn UÍF til íbúa Fjallabyggðar vegna lokaþrifa á íbúðarhúsinu á Hóli. Framkvæmdir hafa gengið vel og munu iðnaðarmennirnir klára á fimmtudaginn. 
Á laugardaginn koma fyrstu gestir í húsið og eru næstu helgar bókaðar. Því þarf að þrífa íbúðarhúsið á fimmtudags- og föstudagseftirmiðdegi. 
 
Óskað er eftir að allir þeir sem vettlingi geta valdið komi á fimmtudaginn kl. 16:00 og aðstoði við þrif. Einnig á föstudaginn ef með þarf. 

Stjórn UÍF.