Sundlaugar í Fjallabyggð opna á morgun 15. apríl

Sundlaugin í Ólafsfirðir
Mynd: Magnús A. Sveinsson
Sundlaugin í Ólafsfirðir
Mynd: Magnús A. Sveinsson

Sundlaugarnar í Fjallabyggð verða opnaðar á morgun 15. apríl 2021 kl. 6:30 en ný reglugerð um sóttvarnir sem gildi tekur á miðnætti leyfir opnun sundlauga með 50% leyfilegum hámarksfjölda gesta. 
Áfram eru sóttvarnir í heiðri hafðar og gestir hvattir til að vanda sig í þeim efnum. Fjöldatakmörk í potta eru 7 manns í einu. Gufubað 2 einstaklingar í einu og kalda kar 1 einstaklingur. Börn fædd fyrir 2015 eru talin með gestafjölda.

Því miður reynist ekki hægt að opna líkamsræktasali fyrir almenning að svo komnu máli þar sem reglugerð gerir aðeins ráð fyrir að hópatímar séu leyfðir í heilsu- og líkamrsæktum með ákveðnum skilyrðum. Sóttvarnarlæknir gefur út leiðbeiningar fyrir heilsu- og líkamsræktir. Minnisblað sóttvarnarlæknis má sjá hér. Hins vegar er opnað á íþróttaæfingar barna og fullorðinna.