Ólæti í byrjun júní

Ólæti, tónlistar- og menningarhátíð ungs fólks verður haldin í byrjun júní eða helgina 6. - 8. Ólæti byggist upp á fjölbreyttum tónlistaratriðum og mikilli afþreyingu.  
Hátíðin var haldin í fyrsta skipti á síðasta ári og eru það nokkrar ungar stúlkur í Ólafsfirði sem standa að framkvæmd þessarar hátíðar. Undirbúningar fyrir hátíðina er hafin.
Búið er að setja hátíðina á réttan stað í Viðburðadagatali Fjallabyggðar sem má nálgast hér.