Listagjöf um allt land!

Mynd: Listahatid.is
Mynd: Listahatid.is
Íbúum um allt land býðst að njóta listagjafar helgina 19.-20. desember næstkomandi. Listafólk í fremstu röð mun þá sækja fólk heim og flytja stutta listgjörninga, tónlist, ljóðlist, sirkusatriði eða dans sem gefendur geta pantað fyrir ástvini í gegnum vefinn. Einnig verður boðið upp á rafrænar listagjafir til þeirra sem geta ekki tekið á móti gjöf í eigin persónu vegna sóttvarnatilmæla eða staðsetningar. Gjöfin er án endurgjalds en takmarkast við eina pöntun á mann.
 

Það eru mennta- og menningarmálaráðuneytið og Listahátíð í Reykjavík sem standa saman að þessu verkefni og kemur í framhaldi af viðbragðsverkefni þeirra, Listagjöf, sem vakti mikla lukku í Reykjavíkurborg í byrjun nóvember. Áætlað er að hið minnsta 100 listamenn muni að þessu sinni dreifa allt að 750 listagjöfum á tugi áfangastaða um land allt.

Hver listagjöf er um það bil fimm til tíu mínútna flutningur á tónlist, dansi eða ljóðalestri frá mörgu af okkar allra besta listafólki. Sá eða sú sem bókar gjöfina sér til þess að viðtakandinn verði heima þegar gjöfin verður afhent og tekur að auki á móti listamanninum. Flutningurinn fer svo fram í öruggri covid-fjarlægð frá þiggjanda gjafarinnar, utandyra ef þess er nokkur kostur eða annars staðar þar sem hægt er að tryggja örugga fjarlægð.

Athygli er vakin á því að þangað sem listafólk kemst ekki í eigin persónu eða til þeirra sem treysta sér ekki til að taka á móti listafólki heim að dyrum verður í boði að panta listagjafir sem persónulegt myndsímtal.

Opnað verður fyrir gefendur að panta Listagjafir á hádegi mánudaginn 14. desember. Þær verður hægt að panta gegnum vefslóðina listagjöf.listahatid.is en þar verður einnig að finna allar nánari upplýsingar.