Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 31. maí nk.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 31. maí nk.
Á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar þann 20. maí var lagt fram bréf frá Þjóðskrá ásamt kjörskrárstofni fyrir Fjallabyggð.  Samkvæmt kjörskrárstofni eru 1.611 á kjörskrá í Fjallabyggð. 
Á Siglufirði eru 975 á kjörskrá og í Ólafsfirði 636. 

Bæjarstjórn samþykkti framlagða kjörskrá og mun kjörskráin liggja frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar frá og með deginum í dag, 21. maí 2014.