Ferðastefna Fjallabyggðar

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar boðar hér með til fundar fimmtudaginn 20. febrúar kl. 17:00. Fundarefni: Ferðastefna Fjallabyggðar. Ferðaþjónustuaðilar í Fjallabyggð eru sérstaklega hvattir til að mæta en fundurinn er opin öllum þeim sem áhuga hafa á málefninu.
Á fundinn mætir Aðalheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Fundurinn verður haldin í Menntaskólanum á Tröllaskaga.
Þeir sem ætla að mæta á fundinn vinsamlegast látið vita með því að senda tölvupóst á kristinn@fjallabyggd.is