Menningarráð Eyþings í samstarfi við menntamálaráðuneytið, Norræna húsið, Norrænu upplýsingaskrifstofuna á
Akureyri og Hvalasafnið á Húsavík boða til kynningarfundar um norrænt samstarf og norræna menningarsjóði.Fundurinn verður haldinn
í Hvalasafninu á Húsavík föstudaginn 9. janúar kl. 10.30 – 14.30
Dagskrá:
10.30 - 11.00
Kynning á breytingum á norrænu menningarstarfi og formennskuáætlun Íslands
í Norrænu ráðherranefndinni. Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, menntamálaráðuneytinu
11.00 –
11.30
Norræna menningargáttin / Kulturkontakt Nord.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir, Norræna húsinu
11.30 - 12.00
Norræni menningarsjóðurinn / Nordisk kulturfond
og aðrir norrænir menningarsjóðir. María Jónsdóttir, Norrænu upplýsingaskrifstofunni,
Akureyri
12.00 -12.30
Léttar veitingar
13.00 – 14.00
Að sækja um styrk. Ragnheiður H.
Þórarinsdóttir, menntamálaráðuneytinu
14.00 -14.30
Umræður og
fyrirspurnir
Í lok fundar gefst fundargestum færi á að ræða við fyrirlesara um möguleika á að sækja um styrk
á norrænum vettvangi.
Fundurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en
skráning fer fram á netfanginu menning@eything.is