Smábátahöfnin á Siglufirði Mynd: Jón Steinar
Samkvæmt veðurspá er gert ráð fyrir vaxandi norðanátt og vonskuveðri frá miðvikudegi til föstudags, einnig er gert ráð fyrir mikilli ölduhæð.
Spáð er 15 til 23 m/s af norðri, ölduhæð allt að 12 metrum ásamt stórstreymi, því má búast við hárri sjávarstöðu og mögulega flóðum.
Eigendur skipa og báta í höfnum Fjallabyggðar eru því hvattir til að sýna aðgát, tryggja landfestar sem og festa lausamuni sem geta fokið.
Elías Pétursson,
hafnarstjóri
Ölduspá fimmtudaginn 3. desember kl. 06 |
|
Vindaspá fimmtudaginn 3. desember kl. 06 |
|
|
|