Samstarf hafið milli íþróttamiðstöðva í Fjallabyggð og á Dalvík

Mynd: Íþróttamiðstöð Dalvíkur
Mynd: Íþróttamiðstöð Dalvíkur

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 7. október síðast liðinn samstarf milli íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar.

Forstöðumaður íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar óskuðu eftir því við nefndina að komið yrði á formlegu samstarfi milli sveitarfélaganna í samnýtingu sund og líkamsræktarkorta. Þeir sem eiga gild tímabilskort hjá annarri íþróttamiðstöðinni geta því fengið aðgang að rækt og/eða sundi í allt að tvö skipti á viku á hvorum stað.

Að auki verði tímabundinn aðgangur fyrir korthafa þegar annar aðilinn er með lokað vegna viðhalds eða þrifa.