Skólahald í Leikskóla -, Tónlistarskóla - og Grunnskóla Fjallabyggðar fellur niður á morgun miðvikudag

Í ljósi spár um versnandi veður og aukna ofankomu hefur verið tekin ákvörðun um að skólahald leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í Fjallabyggð  falli niður á morgun miðvikudaginn 11. desember. Þá eru foreldrar hvattir til að ná í börn sín við fyrsta tækifæri í leikskólann í dag. Veðrið á enn eftir að versna ef spár ganga eftir og víst er að færð á eftir að þyngjast verulega. Opnun félagsmiðstöðvarinnar Neon fellur einnig niður á morgun miðvikudag.