Breyttur útivistartími frá 1. september

Vakin er athygli á því að útivist­ar­tími barna og ung­linga tók breyt­ing­um 1. sept­em­ber. 

Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukk­an 20:00 og 13 til 16 ára ung­ling­ar mega vera úti til klukk­an 22:00. 
Foreldrum er að sjálfsögðu heimilt að stytta útivistartíma barna sinna enda eru þeir forráðamenn barna sinna og unglinga.

Bregða má út af reglunum þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13 - 16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla- íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.

Úti­vist­ar­regl­urn­ar eru settar sam­kvæmt barna­vernd­ar­lög­um. 
 
Mikilvægt er að foreldrar sýni samtöðu er kemur að því að virða útivistartímann.