Börn í leikskólanum á Siglufirði kíktu í heimsókn í Ráðhúsið

Efnilegir og flottir nemendur leikskólans Leikskála á Siglufirði komu óvænt í heimsókn í Ráðhúsið í dag og færðu okkur mynd sem þau hafa teiknað. Hópurinn er að vinna með bókstafinn U og myndin því tengd stafnum og umferðinni. Auðvitað fengum við söng líka.

Heimsóknin lífgar upp á daginn og myndin einnig sem er einstaklega litrík og skemmtileg. Hún hefur nú verið hengd upp í stigaganginn.

Þökkum kærlega fyrir skemmtilega heimsókn.