Úthlutun menningarstyrkja fyrir árið 2020

Úthlutun menningarstyrkja fyrir árið 2020

Fjallabyggð veitir ár hvert menningartengda styrki til félagasamtaka, stofnana og einstaklinga til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur, forgangsröðun og fjárhagsáætlun bæjarstjórnar.

Haustið 2019 voru gerðar breytingar á úthlutun styrkja hjá Fjallabyggð. Breytingarnar fólu í sér gerð nýrra úthlutunarreglna og einnig voru flokkar styrkja endurskoðaðir. Menningartengdum styrkjum er, eftir þessar breytingar,  úthlutað í eftirfarandi flokkum vegna ársins 2020:

  • Styrkir til menningarmála (einstök menningartengd verkefni)
  • Styrkir til hátíðarhalda
  • Styrkir til reksturs safna og setra

Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að veita styrki til þessara þriggja flokka á árinu 2020 að upphæð kr. 8.700.000.- Þar af fara kr. 2.700.000.- til einstakra menningartengdra verkefna, kr. 3.250.000.- til hátíðarhalda og kr. 2.750.000.- til reksturs safna og setra.

Áfram verður veittur styrkur til uppbyggingar Pálshúss og styrkur til bæjarlistamanns og eru þeir óbreyttir frá fyrra ári.

Úthlutaðir styrkir til menningarmála á árinu 2019 námu kr. 6.650.000.- auk uppbyggingarstyrks til Pálshúss og styrks til bæjarlistamanns og hafa því framlög Fjallabyggðar til menningarmála hækkað um kr. 2.050.000.- milli ára.

Úthlutaðir styrkir í flokknum Styrkir til menningarmála, nema samtals kr. 2.700.000.-  Alls bárust 20 umsóknir að upphæð kr. 5.720.000.- þar af var fjórum umsóknum hafnað.

Úthlutaðir styrkir í flokknum Styrkir til reksturs safna og setra nema samtals kr. 2.750.000.-  Alls bárust fjórar umsóknir, samtals að upphæð kr. 4.500.000.-

Úthlutaðir styrkir í flokknum Styrkir til hátíðahalda nema samtals kr. 3.250.000.- en alls bárust átta umsóknir, samtals að upphæð kr. 6.201.815.-

Umsækjendur um styrki á árinu 2020 fá sent bréf um ákvörðun bæjarráðs og markað- og menningarnefndar með tölvupósti á það netfang sem upp var gefið í umsókn um styrk sem og í almennum pósti.

Formleg athöfn um úthlutun styrkja verður haldin í Tjarnarborg þann 6. febrúar 2020 kl. 18:00, samhliða útnefningu bæjarlistamanns Fjallabyggðar og eru allir velkomnir.