Viðburðadagatal á aðventu 2019 - frestur til að senda inn viðburð framlengdur til 15. nóvember

Viðburðadagatal á aðventu í Fjallabyggð 2019

Eins og fyrri ár er undirbúningur að aðventu- og jóladagskrá í Fjallabyggð að hefjast og byrjum við á viðburðadagatalinu. 

Undanfarin ár hefur viðburðadagatal verið gefið út á vegum bæjarins þar sem tíunduð er dagskrá sem flestra þjónustuaðila, kirkjunnar, félaga, safna, skóla, jólamarkaðir, miðbæjarstemning og fleira sem fylgir því að njóta töfra aðventunnar.

Upplýsingar um viðburði er hægt að senda til markaðs- og menningarfulltrúa á netfangið: lindalea@fjallabyggd.is eða í síma 464-9117  í síðasta lagi 15. nóvember
Viðburðadagatalinu verður dreift á öll heimili og fyrirtæki í Fjallabyggð og á vef Fjallabyggðar.

Ljósin verða kveikt á jólatrénu í Ólafsfirði laugardaginn 30. nóvember kl. 16:00 og á Siglufirði sunnudaginn 1. desember kl. 16:00

Jólamarkaður Tjarnarborgar laugardaginn 30. nóvember

Í tengslum við tendrun jólatrés í Ólafsfirði laugardaginn 30. nóvember verður haldinn jólamarkaður í og við Menningarhúsið Tjarnarborg milli kl. 13:00 - 16:00.

Þeir sem hafa hug á því að fá borð eða panta Jólahús vinsamlegast hafi samband við Ástu í síma 853 8020 eða á netfangið; tjarnarborg@fjallabyggd.is