Frístundastarf barna sumarið 2023

Eins og síðustu ár mun Fjallabyggð birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2023.
Með því verða upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.

Horft er til afþreyingar / námskeiða á sviði menningar, fræðslu, íþrótta o.s.frv.
Hægt verður að bæta inn í yfirlitið eftir þann tíma en gott að hafa sem mest tilbúið við birtingu yfirlitsins.

Reglur um frístundastyrki Fjallabyggðar eru aðgengilega á vef sveitarfélagins. 

Þeir aðilar sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá fyrir börn
og unglinga í sumar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um það hér fyrir neðan fyrir 31. maí 2023, eða á netföngin rikey@fjallabyggd.is og
lindalea@fjallabyggd.is, sem einnig veita frekari upplýsingar ef þörf krefur.

Upplýsingar um afþreyingu eða námskeið

Námskeiðið er í boði fyrir börn gesta

Tekið við frístundastyrk