Dansandi Fjallabyggð - dansnámskeið í Tjarnarborg 2022

Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag ætlar að ljúka árinu á þvi að bjóða íbúum Fjallabyggðar upp á tvö opin danskvöld sem haldin verða í Tjarnarborg sunnudagskvöldin 27. nóvember og 4. desember kl. 20:00, klukkustund í senn. Danskennarinn Ingunn Hallgrímsdóttir verður á staðnum og kennir og leiðbeinir þátttakendum. Þátttaka er endurgjaldslaus.

Dönsum inn í aðventuna, njótum samverunnar og höfum gaman saman!

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.