Fátt jafnast á við góðan dag á fjöllum og að skíða niður ósnortnar brekkur í stórfenglegu umhverfi. Fjallabyggð hefur án efa ein bestu skíðasvæði landsins, með sín háu fjöll og mikla snjó. Fjöllin eru á heimsmælikvarða og bjóða upp á brekkur við allra hæfi hvort sem þú ert að byrja eða í leit að verulegum áskonunum. Að jafnaði er hægt að ganga á fjöll og skíða niður frá mars og fram í júní. Þegar daginn fer að lengja verður snjórinn enn betri og þegar kemur fram í júní er hægt að skíða í miðnætur sólinni eins og um miðjan dag.
Athugið að þegar ferðast er utan hefðbundinna skíðasvæða þarf staðbundna kunnáttu og þekkingu til að forðast hættuleg svæði og snjóflóð. Við mælum því eindregið með að einstaklingar og hópar nýti sér þjónustu staðkunnugra leiðsögumanna í gegnum þjónustuaðila á svæðinu.
Tvö frábær skíðasvæði er að finna í Fjallabyggð og geta skíðaiðkendur því valið um fjölbreytt svæði og fært sig á milli eftir því hvernig viðrar á hverjum stað.
Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði
Skíðasvæðið í Skarðsdal við Siglufjörð má tvímælalaust telja með bestu skíðasvæðum landsins Þetta er snjómikið svæði og hefur verið hægt að skíða þarna fram á vor. Á svæðinu eru nú þrjár lyftur, tvær samfelldar lyftur, diska og T-lyfta sem samtals eru u.þ.b. 1500 metrar að lengd. Þriðja og efsta lyftan er 530 metra löng með um 180 metra fallhæð og afkastar hún um 550 manns á klukkustund.
Neðsta-lyfta, diskalyfta af Doppelmayr gerð, 430 m. löng. Fallhæð 100 m. Afkastar 480 manns á klukkustund. Byggð 1988.
T-lyfta, einnig af Doppelmayr gerð, 1034 m. löng. Fallhæð 220 m. Afkastar 720 manns á klukkustund.
Bungulyfta, diskalyfta af Doppelmayr gerð, 530 m. löng. Fallhæð 180m. Afkastar 550 manns á klukkustund. Bungulyftan er í um 650 metrum yfir sjávarmáli.
Hálslyfta: diskalyfta af Doppelmayr gerð 320 m löng. Fallhæð 100m. Afkastar 500 manns á klst.
Göngusvæði: Aðstaða fyrir skíðagöngu: Troðin er gönguleið upp á Súlur þegar nægur snjór og aðstæður leyfa. En bent er á að mjög góð gönguskíðabraut (Bárubraut) er í Ólafsfirði og þegar nægur snjór er í Ólafsfirði er troðinn braut fyrir allan almenning að auki.
NÁNAR
Sími: 467 1806 & 877 3399

Skíðasvæðið Tindaöxl í Ólafsfirði
Ólafsfjörður er bæði með skíðalyftu í Tindaöxl þar sem má finna góðar svigbrautir.
Ólafsfjörður hefur löngum verið þekktur fyrir góða aðstöðu fyrir gönguskíði og eru göngubrautir lagðar nánaust um allan bæ. Á skíðavæðinu í Tindaöxl er ein 650 metra löng Doppelmayr diskalyfta. Þá er möguleiki að setja upp litla togbraut. Einn troðari er á svæðinu og aðgangur að öðrum á álagstímum.
Brekkur á skíðasvæðinu eru yfirleitt troðnar á morgnana, það eru venjulega þrjár 600 metra langar og ein til tvær 350 metra langar brautir troðnar.
Göngubrautir eru troðnar alla daga þegar veður leyfir. Trimmbraut er lögð norðan við Ólafsjarðarvatn, rétt við byggðina. Æfingabraut er oft troðin í miðbænum. Þá er ný ljósabraut "Bárubraut" sunnan við skíðaskálann í Tindaöxl og er hún hentug til að trimma, æfa og keppa í. Yfirleitt er troðið á morgnana eða strax eftir hádegi. Brautirnar eru troðnar með spori.
Brettaaðstaða:
Brettamenn fá stór ótroðin svæði, þeir nota gjarnan þá hryggi sem eru á svæðinu og stökkpallar eru útbúnir í samráði við þá.
Veitingar:
Í skíðaskálanum er hægt að fá gosdrykki, kakó, kaffi, samlokur, hamborgarar, franskar og sælgæti. Hópar geta fengið heimilismat. Í skálanum er einnig svefnloft þar sem u.þ.b. 25 manns geta gist í svefnpokum.
Skíðapakkar:
Gerð eru tilboð fyrir hópa, lyftukort, gistingu, mat o.þ.h. Eru þessi tilboð mjög hagstæð.
NÁNAR
Sími: 466-2527 & 868-8344