Viðtalstími bæjarfulltrúa Fjallabyggðar á Siglufirði

Viðtalstími bæjarfulltrúa verður mánudaginn 28. september að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30.

Að þessu sinni taka þau Ingibjörg G. Jónsdóttir, I-lista, S. Guðrún Hauksdóttir D-lista og Særún Hlín Layfeyjardóttir H-lista á móti íbúum. 

Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.