Viðtalstími bæjarfulltrúa Fjallabyggðar á Siglufirði

Bæjarstjórn Fjallabyggðar býður upp á viðtalstíma með bæjarfulltrúum einu sinni í mánuði og var fyrsti fundur haldinn 28 janúar sl.

Fundirnir verða haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar, til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður í dag mánudaginn 29. apríl að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30.
Til viðtals verða bæjarfulltrúarnir Ingibjörg S. Jónsdóttir, S. Guðrún Hauksdóttir og Særún Hlín Laufeyjardóttir.

 

 

                 

 Ingibjörg S. Jónsdóttir                S. Gruðún Hauksdóttir       Særún Hlín Laufeyjardóttir    

 

 Dagatal 2019