Trilludagar á Siglufirði - Aflýst

Trilludagar á Siglufirði helgina fyrir verslunarmannahelgi 25. júlí 2020


Laugardagur 25. júlí 

kl. 10:00 - 16:00         Frítt á sjóstöng fyrir alla fjölskylduna. Vesti og sjóstangir um borð.

Frítt á sjóstöng og útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra fyrir alla fjölskylduna.
Veiðistangir og beita verða um borð. Allir koma heim með eitthvað gott á grillið.

Allir velkomnir að hafa með sína eigin veiðistöng.

kl. 10:00 - 16:00         Grill á hafnarsvæðinu. 
Kiwanis menn á Siglufirði standa við götugrillið frá því fyrsta trilla leggur af stað þar til sú síðasta kemur í land.

Þegar komið er að landi er gert að aflanum af fagfólki og hann síðan grillaður. Gestir fá svo að smakka. Boðið er upp á salat með fisknum.

Kl. 10:00-16:00           Grill, fjör og tónlist á hafnarsvæðinu allann daginn

  • Tónlist og fjör
  • Fjölskyldugrill; fiskur, pylsur og drykkur fyrir alla fjölskylduna
  • Hoppukastali fyrir káta krakka
  • Fjölskylduskemmtun á hafnarsvæðinu

Við klárum svo þennan frábæra fjölskyldudag með Trilluballi á bæjarbryggjunni fram eftir kvöldi. 

Alltaf eitthvað áhugavert að gerast alla Trilludagshelgina fyrir alla fjölskylduna í Fjallabyggð.

 

Málverka- og handverkssýningar
Söfn og setur eru opin
Veitingastaðir með eitthvað gott á matseðli 
Bókmenntir og ljóð
Lifandi viðburðir á söfnum og veitingahúsum
Tónleikar víðs vegar um bæinn
Og fleira og fleira