Töfrar Og Sjónhverfingar Tjarnarborg í Ólafsfirði

Einar Mikael töframaður hefur notið ómældra vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Töfrar og sjónhverfingar er ný sýning sem er troðfull af ótrúlegum töfrabrögðum og mögnuðum sjónhverfingum. Einar leyfir áhorfendum að taka virkan þátt í sýningunni og velur hann oftar en ekki unga áhorfendur úr sal til að aðstoða hann í töfrabrögðunum nú er um að gera að nýta tækifærið og sjá Einar Mikael með öll sín bestu atriði.

Beint eftir sýningarnar er gestum boðið uppá myndatöku með Einari.
Miðaverð er 2.000 kr. Miðarnir eru seldir við hurð síðan er hægt að panta miða með því að senda póst á einarmidar@gmail.com taka fram nafn og fjölda miða.

Sýningin er haldin í Tjarnarborg

Hér er hægt að sjá myndbrot frá sýningu með Einari Mikael
https://www.youtube.com/watch?v=EZoOaK6S_ik