Töfrar og sjónhverfingar í Tjarnarborg 2. maí

Töfraheimar Einars Mikaels  í Tjarnarborg 2. maí 2019 kl. 17:00 - 19:00.

Einar Mikael töframaður hefur notið ómældra vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Töfrar og sjónhverfingar er ný sýning sem er troðfull af ótrúlegum töfrabrögðum og mögnuðum sjónhverfingum. Einar leyfir áhorfendum að taka virkan þátt í sýningunni og velur hann oftar en ekki unga áhorfendur úr sal til að aðstoða hann í töfrabrögðunum nú er um að gera að nýta tækifærið og sjá Einar Mikael með öll sín bestu atriði.

Beint eftir sýningarnar er gestum boðið uppá myndatöku með Einari og hægt er að kaupa ýmsan töfravarning eftir sýningarnar galdrabækur og töfradót.

Miðaverð er 2.000 kr. Miðarnir eru seldir við hurð síðan er hægt að panta miða með því að senda póst á einarmidar@gmail.com taka fram nafn og fjölda miða.

Hér er hægt að sjá myndbrot frá sýningu með Einari Mikael


https://www.youtube.com/watch?v=EZoOaK6S_ik