Þjóðlagahátíð á Siglufirði - Fagurt er í Fjörðum tónleikar í Siglufjarðarkirkju

Þjóðlagahátíð á Siglufirði stendur fyrir tónleikum í Siglufjarðarkirkju föstudaginn 5. júlí kl. 20:00.

Tónleikarnir bera yfirskriftina Fagurt er í Fjörðum, - íslensk þjóðlög og söngvar eftir Martein Sindra. 

Fram koma:

Marteinn Sindri Jónsson söngur og gítar, Óttar Sæmundsen bassi, Ólafur Björn Ólafsson slagverk og Daníel Friðrik Böðvarsson gítar.