Stubbamót

Stubbamót SSS
Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) heldur Stubbamót laugardaginn 23.febrúar 2019 (sunnudagurinn 24.febrúar til vara).
Mótið fer fram á Skíðasvæði Siglufjarðar, Skarðsdal.
Um er að ræða dagsmót fyrir börn fædd 2009 og yngri og keppt verður í Stubbabraut (2 umferðir) á neðsta svæðinu.
Brautarskoðun er kl 10:30 hjá 7 ára og yngri (börn fædd 2011 og yngri).
Brautarskoðun er kl 12:00 hjá 8-9 ára (börn fædd 2009-2010).
Mótsgjaldið er 2.000.- og innifalið er lyftugjald, verðlaunapeningur, drykkur og veitingar í mótslok.
Skráning á netfangið oskarthor77@gmail.com eða í síma 699-8817 (Anna María), þar sem fullt nafn keppanda og fæðingarár kemur fram. Skráning þarf að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 20.febrúar.
Mótsgjaldið er lagt inn á reikning Skíðafélagsins: kt 590269-0779 og banki 0348-26-2431 (nafn barns eða félags í skýringu).
Með skíðakveðju, Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg