Snertur af náttúrunni - Sýningaropnun í Segli67 föstudaginn 31. júlí kl. 17:00-20:00

Sýningin "Snertur af náttúrunni" verður opnuð í Segli 67 á Siglufirði, föstudaginn 31. júlí nk. 17:00-20:00

Þrír myndlistarmenn, Aðalsteinn Þórsson, Joris Rademaker og Þóra Sólveig Bergvinsdóttir, eru öll búsett í Eyjafirði. Þau mætast í Segull 69, tómu verksmiðjurými á Siglufirði. Þau hafa öll verið starfandi myndlistarmenn í lengri tíma og haldið margar einka- og samsýningar víða. Það sem tengir þau saman er áhugi þeirra á náttúrunni, endurvinnslu, náttúruvernd og sjálfbærni. Náttúran er efniviður þeirra í mismunandi listformum s.s. gjörningum, skúlptúrum, innsetningum, videóum og málverkum.

Opnun föstudagskvöld 31. júlí kl. 17.00-20.00 í Segli67, Vetrarbraut 8-10, Siglufirði

Sýningin verður opin frá kl. 1400-17:00 helgarnar 1. - 2. ágúst, 8. - 9. ágúst og 15. - 16. ágúst 


Styrktaraðilar sýningarinnar eru:
Segull 67
Alþýðuhúsið á Siglufirði
Uppbyggingarsjóður Eyþings