Skíðagöngunámskeið SÓ

Skíðafélag Ólafsfjarðar býður upp á byrjendanámskeið fyrir fullorðna helgina 26-27. janúar. Þátttökugjald er kr. 4.000.-

Á námskeiðinu verður farið yfir grunnþætti skíðagöngu, takt, jafnvægi, bremsa, detta, klæðnað ofl.

Þjálfarar eru Elsa Guðrún Jónsdóttir, Jónína Kristjánsdóttir og Kristján Hauksson.
Skráning og nánari upplýsingar á netfangið skiol@simnet.is eða í síma 892-0774 (Kristján)