Síldarsöltun á planinu við Róaldsbrakka

Komdu og njóttu þess að upplifa síldarsöltun og heimsækja Síldarminjasafnið í kjölfarið! Alla laugardaga frá kl. 15:00 - 15:30.

Síldarstúlkur staðarins salta í tunnur, sýna gömul vinnubrögð og vekja upp gamla andann af síldarplönunum, meðal annars með söng, dansi og bryggjuballi við harmonikuspil. Sýningarnar hafa notið mikilla vinsælda meðal safngesta og ferðamanna og gefa gestum sérstaka innsýn í sögu síldarinnar er þeir fylgjast með síldarstúlkunum hausskera og slógdraga síldina – og leggja svo niður í tunnur.