Ráðgjafar SSNE eru með viðtalstíma og persónulega ráðgjöf í Ólafsfirði

Ráðgjafar SSNE eru með viðtalstíma og persónulega ráðgjöf í Fjallabyggð mánudaginn 4. október nk. vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2022. (Skráningarform fyrir viðtalstíma og persónulega ráðgjöf er væntanlegt hér).

Viðvera í Ólafsfirði er á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar að Ólafsvegi 4, efri hæð.

Ert þú með hugmynd og langar að ræða næstu mögulegu skref ? 

Í Ólafsfirði kl. 13:00-14:00
Á Siglufirði kl. 14:30-16:00

Fyrir utan þessa auglýstu tíma er auðsótt að leita til starfsfólks SSNE með því að senda tölvupóst á ssne@ssne.is eða líta við á opnunartíma starfstöðva í Ólafsfirði eða á Akureyri. Starfstöðvar og viðverutíma má finna inn á www.ssne.is