Pálshús Ólafsfirði, afhending skipa

Fimmtudaginn 12. september nk. mun Njörður S. Jóhannsson, módelsmiður á Siglufirði afhenda Pálshúsi í Ólafsfirði þilskipið Gest og áttæringinn Blika að gjöf. Athöfnin hefst kl. 17 og er öllum opin og fólk hvatt til að mæta og sjá þessar listasmíðar. 

Skipin munu verða til sýnis Í Pálshúsi á opnunartíma safnsins frá kl. 11-17 til og með 15. september nk.