Nýtt Töfranámskeið fyrir 6 til 12 ára í Tjarnarborg

Galdranámskeið Einars Mikaels - Eitt námskeið fyrir 6-12 ára

Vegna mikillar eftirspurnar þá verður nýtt Galdranámskeið helgina 18 og 19 janúar sem haldið verður í Tjarnarborg á Ólafsfirði.
Þeir sem hafa komið áður eiga eftir að læra ný töfrabrögð það fá allir nýjan galdrakassa með nýjum atriðum.

Það sem bætist nýtt við er eftirfarandi:
Aðgangur að kennslumyndbandi á netinu
Viðurkenningarskjal
Töfrahetjubíó þar sem við horfum á ótrúlegar sjónhverfingar úr töfrahetjuþáttunum.
Nýr Galdrakassi sem inniheldur Spilastokk og fleiri skemmtileg töfrabrögð.

Horft verður á myndbönd með bestu töframönnum heims og í lok námskeiðsins munu þáttakendur setja upp sýningu fyrir vini og ættingja.

Einar Mikael hefur sérhæft sig í mismunandi töfranámskeiðum fyrir börn síðastliðinn 8 ár núna er Galdraskólinn að opna aftur eftir 3 ára pásu.
Einar hefur kennt yfir 12.000 krökkum töfrabrögð á Íslandi.
Börn sem voru feimnir, óöruggir og með lítið sjálfstraust hafa tekið gríðarlegum breytingum eftir töfranámskeið með Einari Mikael.

Á námskeiðinu læra börnin ótrúlega galdra og magnaðar sjónhverfingar. Þau fá innsýn inní hinn dularfulla heim töframanna. Þau læra undirstöðuatriði í töfrabrögðum, einfalda og skemmtilega spilagaldra, hugsanalestur og sjónhverfingar.
Námskeiðið veitir börnunum aukið sjálfstraust, styrkir mannleg samskipti og þau læra að gera ótrúlega hluti. Í lok námskeiðsins þá setja börnin upp sýningu ásamt Einari Mikael þar sem þau sýna afrakstur námskeiðsins.
Allt Töfradót innifalið.

Staðsetning: Tjarnarborg Ólafsfirði
Dagssetning: 18 og 19 janúar
Tími: 15:00 til kl. 16:30 tvö skipti
Aldur: 6 til 12 ára
Verð: 6.000 kr. allt námskeiðsefni innifalið
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á tofraskoli@gmail.com með nafni og aldri greiða þarf fyrir námskeiðið í síðasta lagi 3 dögum áður en námskeiðið hefst.
Það er 10% systkina afsláttur.

Hér er hægt að skoða myndbrot frá námskeiði
https://www.youtube.com/watch?v=qHcLQyxy5kA