Galdranámskeið með Einari Mikael í Tjarnarborg

Galdranámskeið Einars Mikaels - Eitt námskeið fyrir 6-12 ára 

Einar Mikael hefur sérhæft sig í mismunandi töfranámskeiðum fyrir börn síðastliðinn 8 ár núna er Galdraskólinn að opna aftur eftir 3 ára pásu.
Einar hefur kennt yfir 12.000 krökkum töfrabrögð á Íslandi. 
Börn sem voru feimnir, óöruggir og með lítið sjálfstraust hafa tekið gríðarlegum breytingum eftir töfranámskeið með Einari Mikael.


Á námskeiðinu læra börnin ótrúlega galdra og magnaðar sjónhverfingar. Þau læra undirstöðuatriði í töfrabrögðum, einfalda og skemmtilega spilagaldra, hugsanalestur og sjónhverfingar. 
Námskeiðið veitir börnunum aukið sjálfstraust, styrkir mannleg samskipti og þau læra að gera ótrúlega hluti. 
Töfrahetjubíó þar sem horft verður á einn þátt úr sjónvarpsþáttunum Töfrahetjunum sem sýndir eru á Stöð 2.
Töfradúfan Ásta mætir og allir frá að halda á Ástu.
Allir fá galdradót og sjónhverfingar sem þau meiga taka með sér heim.

Hér er hægt að skoða myndbrot frá námskeiði
https://www.youtube.com/watch?v=qHcLQyxy5kA

Staðsetning: Tjarnarborg 
Dagssetning: Laugardagurinn 17 nóvember 
Tími: 16:00 til 18:00
Aldur: 6 til 12 ára
Verð: 4.000 kr. allt námskeiðsefni innifalið þar á meðal galdradótt
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á galdranamskeid@gmail.com með nafni og aldri greiða þarf fyrir námskeiðið áður en námskeiðið hefst.