Listasmiðja með útskriftarnemendum Listaháskóla Íslands í samstarfi við Herhúsið, Svörtu Kríuna og Segul 67.

Alþýðuhúsið dagana 14. - 27. janúar - Listasmiðja með útskriftarnemendum Listaháskóla Íslands í samstarfi við Herhúsið, Svörtu Kríuna og Segul 67.

Nú er að skapast sú hefð að Listaháskóli Íslands sendir útskriftarnemendur sína til Siglufjarðar til að víkka sjóndeildarhringinn, skapa tengsl, efla hópandann og gefa af sér út í samfélagið. Þetta eru fyrstu skref listamannana til sjálfstæðs starfs undir leiðsögn Sindra Leifssonar og Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Áður sendi Listaháskólinn nemendur til Seyðisfjarðar, og var það mikil innspíting skapandi hugsunar í það samfélag. Nú byggjum við upp á Siglufirði og tökum vel á móti ungu listamönnunum.

Listasmiðjan er byggð upp með svipuðum hætti og Reitir workshop sem fram fór í Alþýðuhúsinu á árunum 2012 - 2016. Nemendur kynna sér sögu Siglufjarðar og fá fyrirlestra frá ýmsum skapandi einstaklingum í bænum, Tengjast inná heimili fólks, í fyrirtæki og með uppákomum um gæinn.

Smiðjan er opin almenningi til að fylgjast með og kynnast fólkinu, og vonumst við til að þar skapist tengsl sem munu halda áfram að vaxa og dafna.