Lista- og menningarganga á Siglufirði

Fjallabyggð býður uppá Lista- og menningargöngu um Siglufjörð fimmtudaginn 6. desember nk. frá kl. 18:00 til ca. 20:00.

Gangan hefst á Ráðhústorginu kl. 18:00.

Vakin er athygli á að kl. 17:00 mun starfsfólk Síldarminjasafnsins kynna nýútgefna bók safnsins, Siglufjörður. Ljósmyndir/Photographs 1872-2018 í Gránu. Því er tilvalið fyrir áhugasama að byrja í Gránu og sameinast svo listagöngunni kl. 18:00 á Ráðhústorginu.  Hér má sjá auglýsingu um útgáfuhófið í Gránu.

Þetta sama kvöld verður árlegt jólakvöld á Siglufirði þar sem verslanir verða með opið frá kl. 19:00 - 22:00. 

Kíkt verður í heimsókn til eftirtalinna aðila og gert ráð fyrir að hver heimsókn taki um 10 mínútur.

18:00-18:10        Ljóðasetur – Opið hús
18:15-18:25         Alþýðuhúsið - Kompan, Sýningaropnun jólasýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur
18:30-18:40        Fríða - Súkkulaðikaffihús – Opið hús
18:50-19:00       Gallerí Imba – Fossvegi 33
19:10-19:20         Ljósmyndasögusafnið
19:25-19:35         Iðjan Dagvist – Opið hús
19:40-19:50        Vinnustofa Abbýjar – Jólamarkaður opið hús
19:55-20:05       Söluturninn í Ytrahúsi: Listsýning Arnars Herbertssonar
20:05-20:15       Sjálfsbjörg Siglufirði - Opið hús

 Kl. 19:00-22:00 Jólakvöld á Siglufirði – lengri opnunartími verslana víðs vegar um bæinn. Hér má sjá auglýsingu um Jólakvöld á Siglufirði.

 Linda Lea Bogadóttir, markaðs- og menningarfulltrúi mun leiða gönguna. Allir hjartanlega velkomnir.