Jólasýning Með Einari Mikael - aðgangur ókeypis

Jólatöfrasýning í Tjarnarborg fyrir alla krakka.

Einar Mikael og Tjarnarborg bjóða til töfrasýningar föstudaginn 13. desember 2019 kl. 17:00

Frítt inn og allir velkomnir

Einar Mikael töframaður hefur notið ómældra vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Töfrar og sjónhverfingar er ný sýning sem er troðfull af ótrúlegum töfrabrögðum og mögnuðum sjónhverfingum. Einar leyfir áhorfendum að taka virkan þátt í sýningunni og velur hann oftar en ekki unga áhorfendur úr sal til að aðstoða hann í töfrabrögðunum nú er um að gera að nýta tækifærið og sjá Einar Mikael með öll sín bestu atriði.

Beint eftir sýninguna er gestum boðið að kynna sér Töfraskóla Einars einnig er hægt að kaupa bréfbréf í Töfraskólann.

hér er hægt að sjá myndbrot frá sýningu með Einari Mikael
https://www.youtube.com/watch?v=EZoOaK6S_ik