F.T. ( Ferðafélagið Trölli ) gengur á Arnfinnsfjall 25. ágúst

F.T. ( Ferðafélagið Trölli )  gengur á Arnfinnsfjall  sunnudaginn 25. ágúst. Lagt af stað frá Vallarhúsinu (KF) við Ægisgötu kl. 10:00

Ganga Arnfinnsfjall eða Finninn, eins og fjallið er jafnan kallað af heimamönnum er um 6 km og hækkun leiðar 690 m.

Allar nánari upplýsingar er að finna á Facebook síðu F.T. https://www.facebook.com/groups/186686381799086/

Gengið verður alla þriðjudaga í sumar og sameinast í bíla kl. 17.30 við Vallarhúsið (KF) Ægisgötu.

Ferðafélagið býður uppá árgjald 6.500.- (maí - sept) 

Verðskrá F.T.
Fullt verð á göngu fer eftir lengd ferðar: 
2 klst = 1.000 kr.
3 klst = 1.500 kr. 
4 klst = 2.000 kr. 
5 klst = 2.500kr.

Ef greitt er árgjald er gefinn 1.000 kr. afsláttur af göngu. (dæmi: 1.500 kr. ganga kostar þá kr. 500.- o.s.frv.)