Fjölskyldusirkushelgi Húlladúllu í Fjallabyggð

Húlladúllan býður íbúum á Tröllaskaga upp á bráðskemmtilega og heilsueflandi fjölskyldusirkushelgi helgina 23. - 24. október 2021. Þátttakendur kynnast og spreyta sig á hinum ýmsu sirkuslistum og og sirkusáhöldum auk þess sem við förum í allskonar skemmtilega leiki.
 
Kennt er í Íþróttahúsinu Ólafsfirði frá klukkan 10:00 - 16:00, með klukkutíma hádegishléi á milli klukkan 12:30 og 13:30, hvorn dag. Þátttökugjald er 2.000 kr.
Smellið hér til þess að skrá þátttakendur til leiks: https://forms.gle/73M3hKwk55tt1w1q6
 
Þátttakendum er frjálst að stíga inn og út úr dagskránni eftir því hvað orka og úthald hvers og eins leyfir. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt saman, bæði lítil og stór, yngri og eldri. Ætlast er til þess að börn yngri en 10 ára séu í fylgd með eldri fjölskyldumeðlimi eða vinum.
 
Í boði verða fjölbreyttar sirkuslistir, t.d. húlla, loftfimleikar í silki, blómaprik, sirkusfimleikar og píramídar, djöggl, jafnvægisfjaðrir, kínverskir snúningsdiskar, kasthringir, veltibretti og fimleikaborðar.
 
Húlladúllan er Unnur María Máney, sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún er lærður sirkuskennari og hefur kennt og sýnt með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus auk þess að koma fram á ýmsum viðburðum á alþjóðlegri grundu.
 
Viðburðurinn nýtur stuðnings uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra og Fjallabyggðar.