Fjölskylduleiðsögn og listasmiðja með Aðalheiði Eysteinsdóttur

Sunnudaginn 21. október kl. 11-12 verður fjölskylduleiðsögn um sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, Hugleiðing um orku í Listasafninu á Akureyri. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningunni. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannsins. Þau sem eiga hamar eða önnur hentug verkfæri mega taka þau með. Aðgangur á fjölskylduleiðsögnina og listasmiðjuna er ókeypis í boði Norðurorku.