Fjarðargangan 2023

Fjarðargangan fer fram á Ólafsfirði 10. og 11. febrúar 2023. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á frábæra upplifun í Fjarðargöngunni. Brautarstæðið er einstakt og liggur meðal annars eftir götum Ólafsfjarðarbæjar. Stemmningin er frábær og allir mættir til að skora á sjálfan sig, taka þátt og hafa gaman. Vissulega er keppni líka, frábær verðlaun, happdrætti, kjötsúpa, grænmetissúpa, úrdráttarverðlaun og ég veit ekki hvað og hvað.

Við byrjum aftur á föstudagskvöldinu með “NÆTUR” Fjarðargöngu og nú bjóðum við upp á bæði 15 km fyrir 17 ára og eldri auk 7,5 km sem er opið fyrir alla sem treysta sér til og langar að prófa. Frábær upplifun að ganga að kvöldi til og brautin öll nánast upplýst. Höfuðljós er að sjálfsögðu skylda.
Laugardaginn 11. febrúar verður svo "aðal" Fjarðargangan þar sem öllu verður til tjaldað. Reyndar munum við ekki spara neitt við nætur gönguna, nú verður þetta bara veisla bæði föstudag og laugardag!

Eins og allir vita hefur verið uppselt í Fjarðargönguna undanfarin ár. Við höldum áfram að hafa fjöldatakmarkanir en nú verða 500 rásnúmer til sölu í Fjarðargönguna 11.febrúar. Fjöldatakmörkun í NÆTUR Fjarðargönguna verður 300 rásnúmer.

Drög að dagskrá 10.-11. febrúar 2023
Föstudaginn 10. febrúar:
Afhending gagna
Nætur Fjarðargangan kl 22:00
Laugardag 11. febrúar
08-10: Afhending gagna, brautarlýsing, útdráttarverðlaun.
11:00: Fjarðargangan - allir flokkar ræstir
13:00: Veitingar í Tjarnarborg,
15:00 Verðlaunaafhending.

Nánari upplýsingar:
Skráning fer fram á netskraning.is/fjardarganga
Facebook: Fjarðargangan
Heimasíða Skíðafélags Ólafsfjarðar: www.skiol.is
Verið hjartanlega velkomin í Fjallabyggð!