Ferðamál á umbrotatímum - Samfélagslegar áskoranir og vísindi

Vísindafélag Íslendinga og Rannsóknarmiðstöð ferðamála við Háskólann á Akureyri standa að málþingi um ferðamál á umbrotatímum laugardaginn 13. október nk.
Málþingið er öllum opið og hefst kl. 13.30 í sal M102 í aðalbyggingu Háskólans á Akureyri. 

Til umfjöllunar verða rannsóknir sem varða stöðu ferðaþjónustunnar á Íslandi í ljósi þolmarka, landsbyggðanna og sjálfbærni.

Fyrirlesarar og erindi:
Gunnþóra Ólafsdóttir, forstöðumaður rannsókna- og tölfræðisviðs Ferðamálastofu: Staða íslenskrar ferðaþjónustu í ljósi þolmarkarannsókna

Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri: Ferðaþjónusta – vannýtt auðlind í landsbyggðunum?

Auður H. Ingólfsdóttir, sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð ferðamála: Ferðamál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna – Hvaða máli skipta rannsóknir?

Fundarstjóri: 
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarmiðstövar HA

Allir velkomnir!