Fjallabyggðameistarakeppni í dorgveiði á Hafnarbryggjunni á Siglufirði fyrir 13 ára og yngi

Laugardaginn 19. september frá kl. 11:00-11:45 verður haldin dorgveiðikeppni á Hafnarbryggjunni á Siglufirði fyrir 13 ára og yngri. 
Keppnin hefst stundvíslega kl. 11:00 og líkur kl. 11:45. Forráðamenn eru hvattir til að koma og aðstoða börnin sín.

Keppendur mæta með eigin veiðistangir, þeir sem eiga björgunarvesti eru hvattir til að mæta í þeim en annars er hægt að fá lánuð vesti.

Vegleg verðlaun eru í boði.

Fjallabyggðameistarakeppni í dorgveiði er liður þriggja nema í Háskólanum á Hólum.

Ekki láta þessa frábæru fjölskylduskemmtun fram hjá þér fara. 
Okkur hefur verið lofað góðu veðri og við vonumst til að sjá sem flesta í góðu veiðiskipi.

Nánar hér:
https://www.facebook.com/events/327135421937771