Berjadagar 1. -4. ágúst 2019

Hin árlega tónlistarhátíð Berjadagar í Ólafsfirði í Fjallabyggð, verða nú haldnir í tuttugasta og fyrsta sinn um verslunarmannahelgina 1. - 4. ágúst.

Hátíðin sem haldin verður í tuttugasta og fyrsta sinn og fer af stað fimmtudaginn 1. ágúst með kraftmiklu upphafskvöldi. Kvöldið hefst með íslenskum þjóðlögum og hljóðfæraslætti Spilmanna Ríkínís í kirkjunni. Því næst rölta gestir saman yfir í hljómleikasal Menningarhússins Tjarnarborg þar sem haldið verður áfram inn í norðlenska nótt með bæjarlistamönnunum Guito og Rodrigo sem leiða brasilíska hljómsveit Berjadaga. Ekki má missa af hátíðarkvöldi með Bjarna Frímanni Bjarnasyni þann 2. ágúst en síðar sama kvöld kemur fram tvíeykið Hundur í óskilum undir berum himni. Morgunstund með söng fyrir börn og fullorðna prýðir dagskrá laugardagsins 3. ágúst. Sviðsuppfærsla á 1. þætti La Traviata  verður flutt og markar tímamót.  Sem fyrr verður gengið með Maríu Bjarney inn í dal til að leggjast í móinn og tína fjallagrös, göngutúr sem fjölskyldan getur notið saman í kyrrð og fegurð fjarðarins. „Hátíðarbrunch“ með djassívafi og Femke Smit á Kaffi Klöru slær botninn í helgina.

Fjöldi listamanna kemur fram á Berjadögum 2019. Þeir  eru meðal annars Sigrún Pálmadóttir, Elmar Gilbertsson, Páll Palomares, Örn Magnússon, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Halldór Bjarki Arnarson, Ásta Sigríður Arnardóttir, Jón Þorsteinsson, Bjarni Frímann Bjarnason, Femke Smit, Jana Salóme Ingibjargardóttir, Ágúst Ólafsson, Hugi Jónsson, Elfa Dröfn Stefánsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Nathalía Druzin Halldórsdóttir, Edda Björk Jónsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Halla Ólöf Jónsdóttir, Ólafur Rúnarsson, Ingrid Nugteren, Lilja Gísladóttir, Guðrún Ösp Sævarsdóttir, Tómas Haarde, Ólöf Sigursveinsdóttir, Diljá Sigursveinsdóttir, Sigursveinn Magnússon, Sigrún Valgerður Gestsdóttir, tvíeykið Hundur í óskilum skipað Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki Stephensen, brasilíska bandið með Rodrigo Lopes, Rodrigo Guito Thomas og Stefáni Daða Ingólfssyni, og að venju leiðir María Bjarney Leifsdóttir gönguna inn Árdalinn.

Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Menningarnótt í ár en kemur norður í Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 17. ágúst til að stjórna hátíðarkvöldi Berjadaga 2018, einskonar ,,lokakvöld”. Hér verður telft saman ólíkum tónverkum og ólíkir listamenn koma fram. Hæst ber að nefna að Bjarni leikur einleik þegar hann glímir við hina stórbrotnu Prelúdíu ,,Tableau” op. 39, nr. 7 eftir Rachmaninov á slaghörpuna í Ólafsfjarðarkirkju. Kristján Jóhannsson flytur m.a. Gígjuna eftir Sigfús Einarsson og á þessum tónleikum hljómar einnig hin ýðilfagra ,,Arpeggione” eftir Schubert í útsetningu fyrir selló og píanó. Eyjólfur Eyjólfsson tenór syngur þjóðlög úr ranni Beethoven ásamt Veru Panitch fiðluleikara og Bjarna Frímanni.

Hægt er að nálgast upplýsingar um viðburði og listamenn á heimasíðunni www.berjadagar-artfest.com. Upplýsingar um viðburði og listamennina er einnig að finna á Facebook síðu Berjadaga.

Gleðilega Berjadagshátíð