ADHD í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Föstudaginn 29. október kl. 20:00 mun hljómsveitin ADHD halda tónleika á listahátíðinni Skafl sem fram fer í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 25. - 31. okt.
Aðgangseyrir 3000 kr.
 
Þrátt fyrir undarlegt ástand síðustu misseri, þá hafa þeir félagar í ADHD þó ekki setið auðum höndum, hafa m.a. tekið upp nýtt efni á tilvonandi plötu, ADHD 8, og spilað á nokkrum tónleikum, nú síðast í Hörpu sem hluti af vetrardagskrá jazzklúbbsins Múlinn. Á efnisskrá tónleikanna verða lög, sum glæný, önnur eldri, sum alveg hundgömul.
 
Meðlimir ADHD eru, Óskar Guðjónsson sem leikur á saxófón, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson, Tómas Jónsson leikur á píanó og trommuleikarinn Magnús Trygvason Eliassen.