Fuglaskrá

Skrá yfir fugla Siglufjarðar samkæmt athugunum

Eitt af því sem einkennir Siglufjörð er mikið fuglalíf allt árið um kring. Um 2000 fuglar af 16-18 tegundum eru taldir að jafnaði í Siglufirði í jólatalningu Náttúrufræðistofnunar. Enn fleiri tegundir teljast til siglfirskra varpfugla og fer þeim sífjölgandi sem reyna varp hvort sem þær festa sig í sessi sem fastir varpfuglar eða ekki.

Langmesta og fjölbreytilegasta fuglalífið er í kringum Leirurnar svo nefndu, flæðisanda innst í firðinum. Þar hefur frá því um 1980 orðið til allstórt kríu- og æðarvarp, beggja megin fjarðar. Ætla má að 1980 hafi 50 kríur og 20-30 æðarfuglar verpt á svæðinu. Árið 1997 voru varpfuglarnir margfalt fleiri eða á.a.g. 500 kríupör og 750 æðarpör.

Áður fyrr var umtalsvert kríuvarp á Úlfsdölum, í Héðinsfirði og á Siglunesi, en á öllum þessum stöðum lagðist varp niður að mestu er fólkið flutti burtu. Greinilegt var hve þessum fugli fjölgaði inni í firðinum eftir að Siglunes fór í eyði.

Skýringar: A = dvelur allt árið. V = vetrarfugl. S = sumarfugl. O = fastur varpfugl. o = óreglulegur varpfugl. G = gestur.

 

  • Fýll - S,O
  • Súla - G
  • Dílaskarfur - A
  • Álft - F
  • Heiðagæs - G
  • Grágæs - F
  • Rauðhöfði - S,o
  • Urtönd - S,O
  • Stokkönd - A,O
  • Grafönd - G
  • Skeiðönd - G
  • Skúfönd - o
  • Duggönd - S,O
  • Æður - A,O
  • Æðarkóngur - o
  • Straumönd - A,O
  • Hávella - V
  • Húsönd - G
  • Toppönd - A,O
  • Gulönd - G
  • Haförn - G
  • Smyrill - S
  • Fálki - V
  • Rjúpa - A,O
  • Keldusvín - G
  • Sandlóa - S,O
  • Heiðlóa - S,O
  • Sendlingur - A,O
  • Tjaldur - S,O
  • Hrossagaukur - S,O
  • Jaðrakan - S,O
  • Spói - S,O
  • Stelkur - S,O
  • Óðinshani - S,O
  • Kjói - S,O
  • Skúmur - G
  • Hettumávur - A,O
  • Stormmávur - o
  • Silfurmávur - A,O
  • Hvítmávur - V
  • Svartbakur - A,O
  • Rita - S,O
  • Kría - S,O
  • Langvía - G
  • Teista - V
  • Haftyrðill - G
  • Húsdúfa - A,O
  • Snæugla - G
  • Brandugla - G
  • Grátittlingur - S,O
  • Máríuerla - S,O
  • Músarrindill - S,O
  • Steindepill - S,O
  • Skógarþröstur - A,O
  • Stari - o
  • Hrafn - A,O
  • Auðnutittlingur - o
  • Snjótittlingur - A,O
Aðrir fuglar, útlenskir flækingar og fargestir sem sést hafa á Siglufirði eru þessir:
Gráhegri, helsingi, brandönd, vepja, rauðbrystingur, skógarsnípa, fjöruspói, tildra, bjartmávur, hringdúfa, turtildúfa, eyrugla, múrsvölungur, bakkasvala, landsvala, silkitoppa, glóbrystingur, svartþröstur, gráþröstur, söngþröstur, sefsöngvari, hettusöngvari, gransöngvari, bókfinka, fjallafinka, barrfinka, rósafinka, krossnefur.